Stjórn 0ohm fundaði kl. 16:00, laugardaginn 7. nóvember 2026, í þetta sinn á netinu. Einar tók fundinn utandyra á Spáni.

Farið var yfir síðustu viðburði og rætt um það sem er framundan. Skemmtilegar fyrirtækjaheimsóknir eru á döfinni og verða auglýstar síðar.
Við stefnum á að halda jólaviðburð í desember og erum að skoða ýmsa möguleika. Það væri gaman að fá ykkur með og heyra jafnvel nokkrar jólasögur. Yfirálagsfundir, jólin á hálendi Íslands, jólakötturinn, óveður og rafmagnsleysi - bara hvað sem er!
Skemmtiatriði og fróðleg erindi eru ávallt velkomin <3
Endilega sendið okkur línu ef þið viljið taka þátt eða vitið um einhvern sem gæti haft áhuga: