Félagar 0Ω komu saman í Verkfræðingahúsinu föstudaginn 30. október þar sem nýr vefur félagsins var kynntur og fulltrúar DTE og Veitna deildu fróðleik úr sínu starfi.

Á nýja vefnum geta félagar fylgst með fréttum, kynnt sér viðburði og skráð sig á þá. Vefurinn er nýr vettvangur fyrir starf 0Ω og upplýsingar um það sem er fram undan hjá félaginu.

Guðjón Teitur Sigurðarson frá DTE flutti erindið „Álið er málið“ og fjallaði um greiningu á fljótandi áli. Rafeindatækni fastra efna kom þar einnig við sögu.

Ottó Már Ívarsson frá Veitum flutti erindið „Eftirhermur“, þar sem hann fjallaði um líkön og rafveitukerfi. Í umræðum á eftir voru meðal annars rifjaðir upp yfirálagsfundir sem áður voru haldnir fyrir jól. Hver veit nema við fáum að heyra meira um þessa fundi í jólaerindi í desember?

Við þökkum Guðjóni Teiti og Ottó Má fyrir fróðleg erindi og öllum sem mættu fyrir komuna. Hlökkum til að sjá ykkur á næsta viðburði!