20 áhugasamir 0ohmarar mættu í vísó til Laka Power. Mörg okkar höfðu ekki mætt í vísó í þó nokkur ár! Sælla minninga.

Á boðstólnum hjá Laka Power var jólatúbbi, boli X, kristall og annað gos og snakk. J-dagurinn kom því snemma hjá okkur. Drykkjan var í lágmarki en þó ekki alveg 0 prómill en spurningar og deiling á þekkingu á milli sérfræðinganna í hámarki.
Einar og Sindri voru með flotta fræðslu um vöruna þeirra og sögu hugmyndarinnar og svo einnig það sem er nú í þróun hjá þeim. Eftir gott glærusjóv fórum við niður í labbið og þar fengum við að sjá áhugavert demo hjá Sindra! Auk þess sáum við skemmtilega prófunarklefa (e. environmental chambers).
Labbið þeirra var einstaklega snyrtilegt og skipulagt og á Laki Power hrós skilið! Laki á einnig hrós skilið fyrir gott vísó og einstaklega hlýjar móttökur!
10/10 vísó.